föstudagur, júní 26, 2009
Bankar - óháð úttekt - hæfnismat
Ég sé um erfðamál dánarbús látinnar frænku sem ekki eignaðist börn. Liður í því er að láta loka bankareikningum og deila út fé til erfingjanna. Sjálfur er ég ekki erfingi eða launaður í þessu vafstri. Ekki mun ég tjá mig um hvað arfsvon gerir fólki - en ekki er um stórfé að ræða í þessu tilfelli.
Bankar eru hins vegar þrír sem ég hef þurft að eiga við samskipti út af þessu. Í gær tók mig 40 mínútur að bíða í Landsbanka eftir að tveimur bankabókum með samtals 18 kr. inneign væri lokað. Þetta tókst loks þegar boldangsfrú í gjaldkerastól var búin að fá nóg af því að hlusta á vandræðagang sumarfólksins og sagði að þetta væru tvær aðgerðir í kerfinu. Hún bað mig bíða smástund meðan hún afgreiddi þann kúnna sem var hjá henni og svo leysti hún málið á hálfri mínútu. Ég sem hafði ætlað að fara í NBI sem snöggvast til að láta loka þessu... og nú sá ég fram á agalega bið í Kaupþingi til að ganga frá málum sem vörðuðu mun hærri upphæðir. Sú unga dama sem tók á móti mér þar var rösk og snjöll og afgreiddi málið á átta mínútum. Allt stóðst sem hún sagði og ég komst í tæka tíð til að sækja dótturina á námskeið.
Íslandsbanki var einnig með nokkra reikninga og sú sem þar tók á móti mér sagði bara: "You don´t mess with me!" en var víst að klára einhvern brandara við samstarfskonu sína þegar ég var óvænt kominn í básinn hennar. En hún kláraði málin rösklega og stóð sig einnig vel.
Spurning um að gefa út hæfnismat bankanna byggt á þessari reynslu. Sjálfur er ég í enn annarri bankastofnun og hef aldrei nokkurn skapaðan hlut saman við hana að sælda, annað en gegnum tölvu. En assgoti er annars búið að loka mörgum bankaútibúum á sl. ári eða svo... Og gamli Sparisjóður Mýrasýslu orðinn að Kaupþingi líka!

fimmtudagur, júní 11, 2009
Af norskum

"Ræningjarnir lærðu að þeir þurftu ekki að óttast reiðina heldur reyndist þeim það hin mesta gæfa að hlusta á Soffíu frænku þó hún væri alltaf svo reið og þeim fyndist það dálítið óþægilegt." (úr pistli eftir Hrein Hreinsson frá 28.nóv.)
Hvað er með þessar norsku skessur? Eva er Soffía frænka nema hún hvað nær aldrei að snúa ræningjunum til betri vegar. Ekki er hún að eyða sínum dýrmæta tíma hér í lagningu - svo mikið er víst. Kannski er þetta með að lúkka vel dálítið 2007. (mynd er frá mbl.is)
Er Gro Harlem enn á floti? Svo var Kristin Halvorsen feikileg vinkona Steingríms J meðan hann var ekki í stjórn. Hvar er hún núna? Pálína með prikið líklega norsk líka(?) Lýsi eftir fleirum norskum í reddingar og ræningjaflengingar.
miðvikudagur, maí 20, 2009
Rán
Um daginn keypti ég geymslu til að eiga afrit af því sem skiptir máli. 1.5 Tb og Snillingur (10) sagði samstundis er hann frétti af kaupunum að mannsheilinn væri 7 Tb. Hann er alltaf að fræða mann - og er vissulega gæddur þeirri ættgengu áráttu að þurfa að hafa alltaf réttast fyrir sér. Það er í hans tilfelli tvíættgengt en í lagi og fyrirgefið, enda varð hann Reykjavíkurmeistari um daginn, reyndar ekki í Besserwissi heldur fótbolta. Svo á hann Undrið (7) fyrir systur, sem var enn meiri beturviti, en er farin að slaka á hvað það varðar. Enn og aftur föðurbetrungur drengurinn, því að ég varð fyrst Reykjavíkurmeistari 17 ára. En verður hann Borgarfjarðarmeistari einhvern tíma?
Geymslan mín reyndist ekki virka sem skyldi og því þurfti ég að skipta henni, svo virkaði ekki hýsingin og ég þurfti í dag að skipta henni líka. Ekki kvarta ég undan þjónustunni, en þegar gaurinn á verkstæðinu var að setja nýja diskinn í nýju hýsinguna kom neyðarkall frá búð og hann bað mig að fylgja sér hið snarasta. Þar kom í ljós að einhver hafði verið gripinn við að stela hleðslutæki. Hleðslutæki! Einhver töff klæddur ungur maður, varla af unglingsaldri, stóð þarna lúpulegur með ólétta stúlku sér við hlið og minn maður í lagfæringum hringdi í eigandann sem lét kalla á lögreglu. Allt kært. Hve mörg hleðslutæki skyldi þessi ungi maður vera til í að borga til að losna við þennan blett af samvisku og sakaskrá sinni. Ég fór áður en lögreglan kom en sá svo grein um aukinn þjófnað í búðum eftir bankahrun í blaðinu þegar ég kom heim.

fimmtudagur, maí 07, 2009
101 Helvíti/Hamingja
Í Paradís rignir sjaldan. Grasið grær
gersamlega óháð veðri og öðrum þáttum
Ekki þarf að spá í hvað gerðist í gær.
Guð sér um sína og heldur öllum sáttum.
Í 101 var hryðjuverk framið í gær.
hávær jarðýta setti þá allt úr skorðum.
(Örskammt þaðan sem ennþá stendur bær-
Austurnes, sem Jón Þorláksson byggði forðum.)
Tætti upp svörðinn Caterpillar knár
kastaði mæði og horfði yfir flagið.
Móinn sem þarna var í þúsund ár
þurrkaður út á dagparti. Það var lagið.
Valllendismóinn var mjúkur undir tönn
meyr sem lamb á villijurtabeði
Kryddaður blóðbergi, beitilyngi og hvönn,
sem beltin söxuðu niður af sannri gleði.
Nú þarf varla að kvíða vorfuglasöng.
Vell í spóa vekur ei framar að morgni.
Í þessu tilfelli þótti náttúran röng
og því greip maðurinn inní - sá viti borni.
Hvort skapar umhverfið menn eða öfugt?
Er endalaust hægt að laga og móta?
Er sama hve málefnið er gott eða göfugt?
Getur náttúran aldrei fengið vafans að njóta?
Móinn var afdrep - allt og ekkert í senn -
unaðsreitur - endalaus ánægja og spretta.
Ævintýraheimur fyrir álfa og menn.
Af hverju þurfti þá að plægja og slétta?
Skjöldur bað um flatan fótboltavöll
- félagið sem er sverð vort og einnig sómi.
Prýðifélagið!! Erum við þar ekki öll -
öflug heild sem talar einum rómi?
Þeir sem mótmæla þola víst ekki börn.
Þola ekki aðra sem kunna lífsins að njóta.
Vita ekki að sókn er sýnu betri en vörn.
og setja út á allt sem sannlega er til bóta.
Caterpillar kláraði verkið í dag.
Kargaþýfið horfið - enginn vandi.
Snillingar þar á ferð sem kunna sitt fag.
svo fylltu þeir í sárið með möl og sandi.
Á morgun kemur svo Maradonaldinho,
meistari fótboltans, ævinlega prúður.
Hann kennir (ókeypis) knattlist úti í mó!
(en krakkarnir borga sjálfir brotnar rúður.)
---
Drengurinn fór út í KR að keppa í gær
kom svo til baka gervigrassvartur í framan.
Ilmandi eins og hjólbarðaverkstæði í hita.
- Pabbi við unnum! - eins og endranær-
Æðislegt, frábært og ótrúlega gaman.
Og ég er algerlega svartur af svita!

föstudagur, mars 20, 2009
Fyrsti sláttur
Eitt örskotsaugnablik fann ég í dag í vitum mér ilminn af nýslegnu grasi. Þá var ég inni heima hjá mér. Var þetta draumsýn um vor eða áhrif frá lögreglufréttum af kannabisræktun? Það kemur aldrei í ljós. En ég bar nú samt á í gær og stefni að vanda að því að vera fyrstur til að slá í minni sveit. Fyrsti krókusinn var kominn vel á skrið í morgun og einir þrír til viðbótar þegar ég kom heim úr vinnu. Vorjafndægur heyrði ég svo í fréttum... og lóa... og leit svo bak við hús og sá að nýi fótboltavöllur krakkanna var að breytast í það moldarsvað sem ég óttaðist að hann yrði þegar komin væru föst mörk og tilbúin grasflöt. Nú verð ég að birta hér kvæðið sem ég orti um þann ógurlega atburð sem átti sér stað í fyrra þegar móanum var slátrað. Birti það næst - stay tuned.
PS - bý ekki í Kollafirði eða nágrenni hans.
PS - bý ekki í Kollafirði eða nágrenni hans.
fimmtudagur, mars 12, 2009
Nýr hattur og góð saga
Héðan í frá mun ég bera ábyrgð á því að setja upp og senda út skoðanakannanir á vegum vinnunnar. Líklega þarf enginn lesandi að hafa af því áhyggjur að lenda í úrtaki þar sem þetta varðar einungis námskeið, ráðstefnur og slíkt sem við höldum. Verst að hafa enga menntun úr aðferðafræði - en veit þó að ekki þarf að leita langt til að fá ráðgjöf. Tólið sem er notað er aðkeypt og túlkar niðurstöðurnar fyrir mann þannig að ekki þarf annað en taka ákvörðun út frá þeim - og það þarf ég sennilega ekki að gera.
Svo vil ég minnast á útvarpssöguna þessa daga - Sögur úr Síðunni eftir Böðvar Guðmundsson frá Kirkjubóli í Hvítársíðu - höfundur les. Ég hlýddi á 6 fyrstu lestrana í beit í gærkvöld á netinu, og á þá inni einn eða tvo. Já, ég er bara svona gömul sál. Þetta er reyndar skemmtiefni í hæsta máta, en ég velti fyrir mér hvort það helgast af því að ég þekki aðstæður og man vel eftir sumum bændunum úr Síðunni sem koma við sögu. Þeir voru sumir náfrændur mínir. Reyndar finnst mér óþarfi af Böðvari að dulbúa þessi minningabrot með því að endurnefna suma staði og sumar persónur. Þjóðkunn skáld fá að vera þau sjálf en óbreyttir sveitamenn eru dulbúnir. Allir sem vilja og geta finna út úr því um hvern er rætt hverju sinni. Ég mæli með þessu engu að síður og sakna þess dálítið að geta ekki rætt sögurnar við pabba...Hann hefði bætt einhverju við, án vafa.
Fyrir rúmum tveimur árum las ég lífssögu Guðmundar Böðvarssonar eftir Silju og hafði gaman af.

þriðjudagur, mars 10, 2009
3.09 tónlistarsmekkur?

I'm Glad There Is You - Frank Sinatra
Money, Money, Money - Abba
Smokestack Lightnin' - Howlin' Wolf
Innocent when you dream - Tom Waits
Night_Shift - Bob Marley
Crucifixus - Gioachino Rossini
Rollin' Stone - Muddy Waters
Da sku' du sett'n - Alf Prøysen
Nebel - Rammstein
Myrkur, sjór og sandur - Bubbi
Over The Rainbow - Judy Garland
The Harder They Come - Jimmy Cliff
Livets gang - Alf Prøysen
The Godfather Waltz - Nino Rota
Moving - Kate Bush
Hasta Manana - Abba
Bell'star - Kim Larsen
Honeymoon Child - Emiliana Torrini
The Sound of Silence - Simon & Garfunkel
Minningar - Ellý Vilhjálms
Frostrósir - Haukur Morthens
That's Amore - Dean Martin
Black Is The Colour - Nina Simone
I Only Have Eyes For You - The Flamingos
Jezebel - Frankie Laine
Og hvað með þessi lög? 9. mars í gær og þá fóru í spilun lög sem eru 3 mín og 9 sek. Þetta var tilraun sem tókst vel. Þarna er hlutfallslega mikið af eldri dægurlögum þar sem þau eru styttri en nú tíðkast gjarna. The Sound of Silence af fyrstu plötu sem ég keypti, Marley lagið af Rastaman Vibrations, uppáhaldsverki sem skilið var eftir í snælduformi í kjallaranum hjá pabba og mömmu þegar þar var hætt að snitta rörbúta. Guðföðurvals spila ég stundum á nikku eða píanó. Og íslenska deildin vel mönnuð. Helst að maður sakni þess að ekki komst meiri klassík á listann, aðallega Bach, en búturinn eftir Rossini er þó úr stykkinu sem ég söng í útvarp fyrir Evrópu í frumraun með alvörukór fyrir 22 árum. Svo er þarna fyrsta lag á fyrstu plötu Kate Bush! Hún þroskaðist en ég ekki. Kate var fyrsta kona í Bretlandi sem kom sjálf eigin tónsmíð í efsta sæti vinsældarlista og var samstundis sett í þröngan bleikan íþróttabol, mynduð fyrir plakat og gerð að varningi.